Skoðunarferðir í Reykjavík
Upplifun og ævintýri í Reykjavík
Reykjavík er (að okkar mati) skemmtilegasta borg í heimi. Þessi litla heimsborg hefur upp á svo margt að bjóða að hér ættu allir að finna afþreyingu við hæfi. Við bjóðum úrval ferða um mat og menningu Reykjavíkurborgar í bland við skemmtilega afþreyingu og nýja upplifun innan borgarmarkanna. Leitaðu ekki langt yfir skammt og njóttu þess að búa í stærstu litlu borg í heimi.